Allt árið 2014 voru fluttar út vörur fyrir 586,9 milljarða króna en inn fyrir 585,3 milljarða króna fob. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 1,6 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands .

Árið 2013 voru vöruskiptin hagstæð um 40,2 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 38,6 milljörðum króna lakari árið 2014 en árið 2013 samkvæmt bráðabirgðatölum.

Í desembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 48,9 milljarða króna og inn fyrir 44,3 milljarða króna fob. Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 4,6 milljarða króna. Í desember 2013 voru vöruskiptin óhagstæð um 2,8 milljarða króna á gengi hvors árs.