Flugfélagið Wow air hefur nú lækkað verð á farmiðum til Parísar í kringum opnunarleiki Evrópumótsins í Frakklandi næsta sumar. Lækkunin kemur í kjölfar verðkönnunar Túrista sem birtist í gær og sýndi að Icelandair byði upp á lægra verð til borgarinnar í kringum mótið.

Túristi greinir nú frá því að Wow air hafi lækkað verðið og lækkunin nemi allt að 46 prósentum. Verðið hjá Icelandair hafi hins vegar hækkað fjóra daga af þeim sjö sem kannaðir voru.

Félögin tvö skaptist nú á að bjóða ódýrasta verðið til borgarinnar í annarri viku júnímánaðar.

Nánari verðsamanburð má sjá á vef Túrista.