Búast má við að yfir 1.500 tonn af útiræktuðu íslensku grænmeti muni fylla hillur verslana um land allt á næstu vikum. Uppskerutími útiræktaðs íslensks grænmetis er nú í fullum gangi og stendur fram á haust.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sölufélagi garðyrkjumanna en spergilkál, gulrætur, gulrófur, sellerí og grænkál er meðal þess sem nú kemur upp úr görðum á Suðurlandi. Þá kemur fram að kuldi fram eftir vori hefur ekki komið að sök og er uppskeran mjög góð í ár.

Garðyrkjubændur á Suðurlandi vinna nú ásamt starfsfólki sínu við að taka upp grænmeti svo hægt sé að koma því glænýju í verslanir. Grænmetið er tekið upp á daginn og er komið í verslanir á höfuðborgarsvæðinu daginn eftir. Útiræktað grænmeti verður tekið upp daglega næstu fjórar vikurnar og sent jafnóðum í verslanir.

Gert er ráð fyrir því að alls verði tekið upp yfir 1.500 tonn af íslensku útiræktuðu grænmeti í ár. Meðal þess sem kemur upp úr görðum eru 550 tonn af gulrófum , 400 tonn af gulrætum og 300 tonn af hvítkáli.

Vorið var kalt á Suðurlandi og höfðu bændur nokkrar áhyggjur að það hefði áhrif á uppskeruna. Sumarið hefur hins vegar verið mjög gott og er uppskeran í ár á svipuðum tíma í fyrra.