Á árinu 2010 voru gefin út leyfi fyrir 105 nýja ferðaskipuleggjendur en samtals hafa 330 þessi leyfi samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu Íslands sem gefur leyfin út. Útgefin ferðaskrifstofuleyfi á árinu voru 21 og samtals eru 128 löglegar ferðaskrifstofur í landinu.

Í ársskýrslu Ferðamálastofu segir að fjölmargar ábendingar hafi borist um starfsemi leyfislausra ferðaskipuleggjenda og flestir hafi nú sótt um leyfi eða séu í umsóknarferli