Vegna fréttatilkynningar frá Seðlabanka Íslands um boðun blaðamannfundar sl. mánudag vill hefur Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis sent frá sér tilkynningu.

Tilkynningin hljómar þannig:

„Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég m.a. hef, var atburðarásin með eftirfarandi hætti:

1. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, hringdi í Glitni kl. 8:45 og tilkynnti að búið væri að boða blaðamannafund kl. 9:15 í Seðlabankanum og óskaði eftir nærveru forstjórans á þeim fundi.

2. Klukkan 8:55 hringdi undirritaður í Ingimund Friðriksson, seðlabankastjóra, og spurði hvort búið væri að boða til blaðamannafundar. Hann sagði svo ekki vera.

3. Klukkan 8:58 hringdi Davíð Oddsson og tjáði mér að það væri rangt hjá Ingimundi að ekki væri búið að boða til blaðamannafundar. Það væri búið að boða til blaðamannafundar og ítrekaði hann ósk sína um að forstjóri Glitnis væri viðstaddur fundinn.

4. Klukkan 9:16 birtist á visir.is frétt þess efnis að búið væri að boða til blaðamannafundar í Seðlabankanum.

5. Klukkan 9.22 hringdi Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri og undirritaður sagðist í því augnabliki vera kominn með undirskrift stærsta hluthafans.

6. Klukkan 9.24 var tölvupóstur með undirskrift stærsta hluthafans sendur til Seðlabankans.

Það að Seðlabanki Íslands sendi ekki frá sér tölvupóst fyrr en kl. 9:25, þar sem formlega er boðað til blaðamannafundar kl. 9:20, breytir því ekki að búið var að boða menn munnlega til blaðamannafundar t.d. sbr. frétt á visir.is kl. 9:16. Ég stend því við fyrri orð mín um aðdraganda þessa máls.

Nú skiptir mestu að allir aðilar snúi bökum saman og leiti leiða til þess að takast á við þá áskorun sem íslenskt efnahagslíf stendur frammi fyrir um þessar mundir. Ég legg áherslu á að vinnufriður skapist fyrir starfsmenn og stjórnendur Glitnis og mun því ekki tjá mig frekar um samskipti mín við starfsmenn Seðlabanka Íslands.

Þorsteinn Már Baldvinsson, Stjórnarformaður Glitnis“

Gleymdist að breyta tíma

Seðlabankinn telur að tímasetning í frétt visir.is kunni að hafa skapað misskilning og ritstjóri þess vefjar hefur sagt að gleymst hafi að uppfæra tíma á frétt um fundinn, sjá hér.