Yfirtökutilboð FMB ehf. til hluthafa í Fiskmarkaði Íslands hf. rann út kl. 16.00, laugardaginn 27. maí 2006, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Eignarhlutur FMB ehf. í Fiskmarkaði Íslands hf. nemur að yfirtökutímanum 89,6247 % af heildarhlutafé Fiskmarkaðs Íslands.

Stjórn Fiskmarkaðs Íslands hf. mun fara fram á við stjórn Kauphallar Íslands að bréf félagsins verði afskráð úr Kauphöll Íslands.