Í síðustu viku varð Tý á í messunni þegar hann notaði ósmekklega myndlíkingu, sem einnig varð að fyrirsögn, í pistli sem fjallaði um formann Samfylkingarinnar, Kristrúnu Frostadóttur og fylgisaukningu flokksins í skoðanakönnunum.

Myndlíkingin var með öllu óboðleg og til þess fallin að særa. Tý þykir afar miður að hafa misboðið lesendum með vanhugsuðum skrifum og biður Kristrúnu og lesendur alla innilegrar afsökunar, enda stendur hann við það sem fram kom í umræddum pistli, að Kristrún sé mesta efni Samfylkingarinnar um langa hríð og bindur miklar vonir við að hún muni hafa góð áhrif á vinstri armi stjórnmálanna.

***
Týr gekk of langt með skrifunum en vill þó árétta að ætlunin var ekki að særa eða misbjóða. Þessi skrif komu ekki frá slæmum stað, þótt ýmsir flautuþyrlar hafi reynt að nýta tækifærið til að væna Tý og Viðskiptablaðið í heild sinni um annarlegar hvatir. Í fullri einlægni þá fór Týr fram úr sér með óviðeigandi myndlíkingu. Týr gerir sér nú grein fyrir að þegar skrifin eru skoðuð í víðara samhengi samfélagslegrar orðræðu, sérstaklega þegar kemur að konum, þá er útkoman vægast sagt ömurleg og allt annað en fyndin. Það er betra að vera vitur eftir á en að verða einskis vísari.

***
Það er fátt skemmtilegra en hárbeitt stjórnmálaumræða, þar sem hart er tekist á - en málefnalega. Stjórnmálaumræða getur þó oft verið ansi ósanngjörn og döpur, þar sem farið er í manninn frekar en málefnin. Við höfum séð fjölmörg dæmi þess í gegnum tíðina og slík stjórnmálaumræða er ekki eitthvað sem Týr vill standa fyrir. Týr leggur það í vana sinn að vera beittur og óvæginn, en á sama tíma málefnalegur og alls ekki meiðandi. Þess vegna tekur Týr því sérstaklega nærri sér að hafa gerst sekur um að bjóða Kristrúnu og lesendum upp á þann ósóma sem hann gerði í síðasta blaði.

***
Týr einsetur sér að læra af þessum mistökum. Hann mun áfram vera beittur og óvæginn í gagnrýni sinni en mun gera sitt allra besta til að sýna viðfangsefnum pistlanna virðingu og falla ekki aftur í sömu gryfju og síðast.

Týr er skoðanapistill. Þessi birtist í Viðskiptablaðinu, sem kom út í dag, fimmtudaginn 19. janúar 2023.