Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lætur ekki þá staðreynd að fjárhagur borgarinnar er rjúkandi rúst trufla sig og boðar mikla uppbyggingu og fjárfestingar á öllum sviðum. Þannig lásu Hrafnarnir í Morgunblaðinu að skipulagsráð hefði samþykkt deiliskipulag The Grimsson Centre í Vatnsmýrinni. Í fyrstu hugsuðu hrafnarnir að það væri þakkarvert að fræðasamfélagið skyldi loksins minnast merkilegs framlags Jósafat Arngrímssonar – eða Joe Grimsson eins og hann kallaði sig einnig – til íslenskrar athafnasögu.

Huginn og Muninn er einn af skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Lesa má þennan í heild sinni í Viðskiptablaðinu sem kom út 4. maí.