Lúxusvöruverslunin Collage the Shop mun opna verslun á Hafnartorgi í sumar. Verslunin mun bjóða upp á mörg af hátískumerki á borð við Gucci, Bottega Veneta, Burberry, Mulberry, Loewe, Balenciaga, Valentino og Saint Laurent, að því er kemur fram í tilkynningu.

Alls eru nú sjö Collage the Shop verslanir á Norðurlöndunum og verður verslunin á Hafnartorgi sú áttunda í röðinni. Hönnun nýju verslunarinnar er í höndum dönsku arkitektastofunnar Reinholdt//Rud.

Collage the Shop er hluti af fjölskyldufyrirtækinu Group88 sem hefur verið einkaumboðsaðili á hátískuvörumerkjum í Skandinavíu síðan 1988. Group88 er rekið af dönsku bræðrunum Thomas og Marius Møller og eru þeir þriðja kynslóð fjölskyldunnar sem stýrir fyrirtækinu.

„Með opnun verslunarinnar í Reykjavík er fyrirtækið að styrkja stöðu sína enn frekar sem einkasöluaðili hátísku á Norðurlöndunum en það rekur nú fleiri en 30 verslanir í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Gautaborg, Osló, ásamt öðrum borgum.“

Collage the Shop bætist í hóp fjölda vandaðra verslana á Hafnartorgi en þar er nú þegar að finna verslanir 66°Norður, Bioeffect, Casa Boutique, Collections, Cos, H&M, H&M Home, GK Reykjavík, Levi‘s, Michelsen 1909, Optical Studio og The North Face. Verslunin verður staðsett við Geirsgötu á Hafnartorgi, beint á móti Hafnartorg Gallery.

„Við höfum lengi fylgst með þróun verslunar á Íslandi með það fyrir augum að opna Collage the Shop búð og núna með uppbyggingu Hafnartorgs í miðborg Reykjavíkur skapast einstakt tækifæri til að bjóða Íslendingum jafnt sem erlendum gestum aðgang að sumum af vinsælustu hátískuvörmerkjum heims. Undirbúningur og hönnun verslunar gengur vel og við getum ekki beðið eftir að opna glæsilega búð næsta vor,“ segir Thomas Møller, forstjóri Group 88.

„Opnun Collage the Shop er frábær viðbót við Hafnartorg og samræmist framtíðarsýn Regins um að bjóða upp á hágæða tískuvörur á þessu einstaka svæði á milli Lækjartorgs og Hörpu en við höfum unnið markvisst að því að styrkja innlenda verslun með því að bjóða upp á eftirsótt vörumerki sem höfða jafnt til Íslendinga sem og erlendra ferðamanna. Hafnartorg hefur fengið frábærar viðtökur, bæði meðal Íslendinga og erlendra ferðamanna, sem kunna að meta gæði og fjölbreytni í verslun, veitingum, menningu og afþreyingu sem svæðið hefur svo sannarlega upp á að bjóða,“ segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri verslunar og þjónustu hjá Reginn fasteignafélagi.