Hagstofan greinir frá því að atvinnuleysi fyrsta ársfjórðungs 2006 mældist 2,4%. Á tímabilinu voru að meðaltali 4.000 manns án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuleysi mældist 2,2% hjá körlum en 2,5% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 7,7%.

Atvinnuleysi nú er nokkuð minna en á sama tímabili fyrir ári síðan þegar atvinnuleysi mældist 3,0%. Atvinnuleysi karla var þá 3,4% en 2,5% hjá konum. Atvinnuleysi var þá einnig mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 9,3%.

Atvinnuþáttaka á Íslandi á fyrsta fjórðungi mældist 81,1%. Fjöldi starfandi á var 163.500 manns og fjölgaði um 7.700 frá sama tíma ári áður. Atvinnuþátttaka karla var 84,6% en kvenna 77,5%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir.

Á fyrsta ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuþátttaka 79,8%. Hjá körlum var atvinnuþátttaka 82,7% en 77,0% hjá konum. Fólki á vinnumarkaði fjölgaði um 6.900 manns frá fyrsta fjórðungi fyrra árs til jafnlengdar á þessu ári.

Meðalfjöldi vinnustunda á fjórðungnum eykst lítillega á milli ára og var 41,2 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 46,2 klst. hjá körlum en 35,2 klst. hjá konum. Til samanburðar var fjöldi vinnustunda á sama tímabili fyrir ári síðan 40,7 klst., 46,6 klst. hjá körlum en 34,0 klst. hjá konum.