Agla Sigríður Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ráðum ehf. sem er dótturfyrirtæki Expectus. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Ráðum ehf. sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf til fyrirtækja og stofnana.

Agla hefur undanfarin ár verið ein af eigendum Capacent og starfað sem ráðgjafi hjá Capacent Ráðningum en hún hefur verið ráðningarstjóri Vinna.is frá upphafi.

„Við erum afar ánægð með að fá Öglu til liðs við okkur. Reynsla hennar mun nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu félagsins og mun án efa skila sér í enn betri þjónustu við viðskiptavini okkar“ segir Hildur Erla Björgvinsdóttir, stjórnarformaður Ráðum.

Agla hefur séð um ráðningar forstjóra fyrirtækja, millistjórnenda, sérfræðinga og starfsfólks í framlínu. Hún hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra auk þess sem eftir hana hafa birst fjölmargar greinar tengdar atvinnulífinu.

Agla tekur við starfi framkvæmdastjóra 1. september næstkomandi.