Heimsmarkaðsverð á áli hefur farið lækkandi frá mánaðamótum. Í gær var verðið skráð hjá LME í London á 1.559 dollara tonnið, eða svipað og við lok fyrstu viku ársins. Hæst hefur álverðið komist 1.647 dollara þann 29. júní, en lægst var verðið það sem af er ári 1.254 dollarar þann 25. febrúar.