Ekki var innistæða fyrir kjarasamningunum sem gerðir voru árið 2011 segir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnhagssviðs Samtaka atvinnulífsins, og tók þá undir skilaboð Seðlabankans. Hún segir vænlegra til árangurs að semja til skemmri tíma í komandi kjarasamningum.

VB Sjónvarp ræddi við Ásdísi eftir fund Viðskiptaráðs um peningamál í morgun.