Bakkavör gat ekki staðið skil á afborgun skuldabréfs sem var á gjalddaga í dag segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Þar k4emur fram að frá 9. desember 2008 hefur félagið tilkynnt að það eigi í viðræðum við skuldabréfaeigendur í þeim tilgangi að framlengja gjalddaga á skuldabréfum félagsins sem skráð eru í Kauphöllinni. Félagið á í viðræðum við stærstu skuldabréfaeigendur varðandi framlengingu bréfanna. Félagið mun hins vegar ekki geta staðið skil á skuldabréfaflokki BAKK 03 1 sem er á gjalddaga í dag, 15. maí.  Stjórn félagsins er hins vegar fullviss um að viðræðurnar muni skila árangri og að gjalddagi skuldabréfanna fáist framlengdur. Félagið mun upplýsa um gang viðræðna eins og kostur er segir í tilkynningu Félagið tilkynnti 31. mars að það hefði tryggt fjármögnun allra rekstrarfélaga samstæðunnar til næstu þriggja ára eða fram til 30. mars 2012. Þessir samningar tryggja félaginu fullnægjandi rekstrarfjármögnun á tímabilinu og sýna jafnframt tiltrú og stuðning lánveitenda við starfsemi Bakkavarar segir í tilkynningu.