Jón Rúnar Halldórsson framkvæmdastjóri og aðaleigandi Saltkaupa hefur selt hlut sinn í félaginu til hóps fjárfesta undir forystu Ólafs Steinarssonar og Péturs Björnssonar að því er kemur fram í tilkynningu.

Í tilkynningu kemur fram að Saltkaup er fremsti söluaðili landsins bæði á salti til saltfiskverkunar og götusalti. Þá rekur félagið umfangsmikla umbúðadeild sem flytur inn og endurselur umbúðir fyrir sjávarútveg, umtalsvert magn af kryddum og öðrum íbætiefnum fyrir matvælavinnslu sem og efni til rykbindingu gatna.

Nýir eigendur hyggjast fylgja eftir uppbyggingu félagsins með sambærilegum hætti og hingað til, en leita um leið leiða til að efla félagið enn frekar. Jón Rúnar mun starfa áfram hjá félaginu sem framkvæmdastjóri.

Guðmundur Ásgeirsson sem verið hefur hluthafi í félaginu með Jóni Rúnari verður áfram aðili að félaginu.

Fyrirtækjaráðgjöf SPRON hafði umsjón með söluferlinu.