Íslenska sprotafyrirtækið Datasmoothie hefur unnið ein virtustu verðlaun sem veitt eru á sviði markaðsrannsókna í Bretlandi, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Verðlaunin voru veitt mánudagskvöldið 5. desember í London, en Viðskiptablaðið greindi frá því þegar það fékk tilnefninguna til verðlaunanna.

Hreppti Datasmoothie fyrstu verðlaun í flokknum Nýsköpun, eða “Technical Innovation” í verðlaunaafhendingu félags markaðsrannsóknarfyrirtækja í Bretlandi, eða “The Market Research Society”.

Birta lifandi skýrslur á tölvum og símum

“Datasmoothie hefur þróað ferska og sveigjanlega lausn til þess að birta lifandi skýrslur á tölvum og símum,” segir í tilvitnun úr úrskurði dómnefndarinnar samkvæmt tilkynningunni

“Við vorum hrifin af því hve framtíðarsýn þeirra er skýr og hversu vönduð varan er hvað varðar hreinleika hönnunarinnar.”

Sprotasjóðurinn Seedcamp meðal hluthafa

Datasmoothie var stofnað snemma ársins 2015 og meðal hluthafa er sprotasjóðurinn Seedcamp, sem þeir segja einn þann virtasta í Evrópu.

Varan var þróun meðal annars í samvinnu við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og breska markaðsrannsóknarfyrirtækið YouGov Plc.

Gamlar tæknilausnir allsráðandi

“Það er gríðarlega mikilvægt að fá svona viðurkenningu á stærstu verðlaunaafhendingu þessa iðnaðar hérna í Bretlandi,” segir
Geir Freysson, framkvæmdastjóri Datasmoothie, en hann segir gamlar tæknilausnir allsráðandi á sviði markaðsrannsókna.

“Fyrirtæki eru lengi að búa til skýrslur með niðurstöðum rannsókna og viðskiptavinir fá þær afhentar í Powerpoint eða PDF skjölum í stað þess að fá gagnvirkar og lifandi skýrslur eins og hægt er að bjóða uppá á netinu.

Þessi verðlaun eru viðurkenning á því að Datasmoothie hefur fundið lausn sem gerir hverjum sem er, óháð tæknikunnáttu, kleift að búa til fallegar og gagnvirkar skýrslur á netinu á mun skemmri tíma en fer í svona skýrslugerð í dag. Og viðskiptavinurinn fær betri þjónustu.”