Lög um kynjahlutfall í stjórnum hlutafélaga hafa þegar skilað nokkrum árangri, segir Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1. Hann vonast til að þetta verði tímabundin aðgerð sem muni ýta við kerfinu.

Fjallað verður um kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja á fundi iðnaðarráðherra í næstu viku þar sem fundað verður með aðilum úr atvinnulífinu.

VB Sjónvarp ræddi við Eggert.