Hf. Eimskipafélag Íslands sendi í dag út formlegt yfirtökutilboð til allra hluthafa Versacold Income Fund að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Eins og áður hefur verið tilkynnt hyggst  félagið bjóða í allt útistandandi hlutafé Versacold fyrir 12,25 Kanadadollara á hlut í reiðufé.

Gögnunum, sem send voru hluthöfum Versacold, fylgdi ályktun stjórnar Versacold Income Fund sem mælti samhljóða með því við hluthafa að taka yfirtökutilboðinu. Hluthafar Versacold hafa frest til kl. 20 (að staðartíma í Toronto) þann 27. júlí til að taka tilboðinu verði það ekki framlengt eða dregið tilbaka.