Verslunin Kristý í Borgarnesi byrjaði fyrir hálfu ári að selja ilmvörur frá bandarísku undirfatakeðjunni Victoria‘s Secret og er samkvæmt fréttavef Skessuhorns eina verslunin á landinu með slíka vöru.

„Það er mjög skemmtilegt að eftir að við fórum að bjóða upp á Victoria’s Secret bættist við stór viðskiptahópur hjá okkur, ungar stúlkur og konur allt niður í 14 ára aldur,“ segir Oddný Bragadóttir eigandi Kristý en þetta kemur sem fyrr segir fram á fréttavef Skessuhorns.

„Við byrjuðum með netverslun í byrjun febrúar, þar sem fólk getur nálgast þessa vöru og eftirspurnin hefur verið hreint ótrúlega, vægast sagt,“ segir Oddný, en áður þurftu íslenskar konur að treysta á að fá þessar vinsælu snyrtivörur í ferðum sínum til útlanda að hennar sögn.

Oddný Bragadóttir hefur rekið verslunina Kristý í 15 ár.