„Við höfum verið að ræða málið í ráðuneytinu og í samráði við forstjóra Fiskistofu, í ljósi þess að ekki er búið að afgreiða málið frá þinginu, hvort ekki sé rétt að staldra örlítið við,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í samtali við Morgunblaðið . Segist hann ekki munu leggja kapp á að upphaflegar áætlanir um flutning Fiskistofu til Akureyrar á þessu ári standist.

„Það er ekki síst vegna þess að við viljum koma til móts við starfsfólk Fiskistofu og tryggja betur mannauðinn, að við höfum verið að velta fyrir okkur hvort ekki væri skynsamlegra að gera þetta á eitthvað lengri tíma, en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir,“ segir Sigurður Ingi.

Hann segir að með því að taka lengri tíma í flutninginn takist betur að nýta þá starfsmannaveltu sem verið hefur hjá stofnuninni. Í því samhengi bendir hann á að í fréttum um daginn hafi komið fram að starfsmannaveltan hafi verið 18% á síðasta ári sem hafi verið einu eða tveimur prósentum meira en hún hafi verið áður.