Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni var nánast sú sama og í vikunni áður og nam tæpum 770 milljónum króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Alls var 27 samningum þinglýst í vikunni eða 10 fleiri frá vikunni áður. Rétt er þó að hafa huga að engin viðskipti voru á fasteignamarkaði í gær, sumardaginn fyrsta en í síðustu viku komu tveir frídagar inn í vikuna, föstudagurinn langi og annar í páskum.

Fjögurra vikna meðalvelta er nú um 1.163 milljónir króna og lækkaði nokkuð milli vikna en tvær fyrstu vikurnar í apríl voru þó þær bestu frá því í byrjun nóvember. Fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað tvær vikur í röð en í lok desember fór fjögurra vikna meðalveltan undir milljarða og það var ekki fyrr en í lok febrúar sem veltan fór aftur yfir milljarð.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan en meðalveltan hefur minnkað um 50% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Sem fyrr segir var fjöldi þinglýstra kaupsamninga 27 í vikunni en 17 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 52 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 32 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

En meðalupphæð á hvern samning lækkar nú verulega á milli vikna, nemur 28,3 milljónum króna á hvern samning en var 45,4 milljónir í síðustu viku sem er nokkuð yfir meðaltali. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljónir króna en eru rétt tæpar 34 milljónir króna frá hvern samning frá síðustu áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 66% og gefur það e.t.v. heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.