Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf. undirrita samning

Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. (FLE) og Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf. (IGS) hafa gert með sér samning um veitingarekstur í Flugstöðinni, segir í fréttatilkynningu, en IGS hefur verið með veitingarekstur í flugstöðinni um árabil.

IGS mun opna nýjan veitingastað á brottfararsvæði flugstöðvarinnar nú í vor sem og  bar með útsýni yfir flugbrautina. IGS mun halda áfram veitingarekstri á 1. og 2. hæð í suðurbyggingu flugstöðvarinnar. Alls mun veitingarými IGS vera á um 990 fermetra svæði.

Með nýjum samningi er gert ráð fyrir að IGS muni auka vöruúrval og leggja áherslu á að selja vörur undir merkjum alþjóðlegra veitingahúsakeðja.

Samningurinn er einn þáttur í að bæta þjónustu við flugfarþega auk þess að auka hlut einkaaðila í flugstöðinni en sú stefna var mótuð þegar ráðist var í forval verslunar- og þjónustufyrirtækja í aðdraganda samninga. Gunnar Olsen framkvæmdastjóri undirritaði samninginn fyrir hönd IGS og Höskuldur Ásgeirsson forstjóri fyrir hönd FLE.