Eins og kunnugt er var Kaupþing Edge vefsíða Kaupþings banka óvirk þann 9. október síðastliðinn.

Á vef Fjármálaeftirlitsins (FME) kemur fram að það er álit FME að Kaupþing hafi sama dag ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæða tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust.

Þá telur FME að samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta hafi stofnast til greiðsluskyldu Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Kaupþings sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna