Vísitala framleiðsluverðs í október var var 191,8 stig og lækkaði um 1,5% frá fyrri mánuði samkvæmt tölum Hagstofu Íslands sem birtar eru á heimasíðu stofnunarinnar. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 244,7 stig og lækkaði um 1% frá fyrri mánuði. Vísitala stóriðju var 166,3 stig og lækkaði um 3,4%. Framleiðsluverð fyrir matvæli var 176,9 stig.

Miðað við október 2015 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 5,8% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 6,1%. Einnig hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 10,1% og verð á matvælum um 1,9% á sama tíma.