Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í gær fund með Yu Guangzhou, aðstoðarutanríkisviðskiptaráðherra Kína í Peking, á fundinum var undirrituð viljayfirlýsing um upphaf fríverslunarviðræðna milli ríkjanna og var ákveðið að þær myndu hefjast þegar í upphafi árs 200, segir í tilkynningu Utanríkisráðuneytisins.

Á fundinum ræddu ráðherrarnir tvíhliða samskipti ríkjanna og aukin umsvif íslenskra fyrirtækja í Kína á undanförnum misserum. Að loknum fundinum var utanríkisráðherra gestgjafi í mótttöku í tilefni af 35 ára stjórnmálasambandi Íslands og Kína. Móttökuna sóttu á þriðja hundrað manns og voru þar meðal annars fulltrúar opinberra aðila, erlendra ríkja og atvinnulífsins, auk íslenskra námsmanna, segir í tilkynningunni.

Fyrr í vikunni opnaði utanríkisráðherra formlega fyrsta áfanga nýrrar hitaveitu í borginni Xian Yang í Shaanxi héraði. Hitaveitan er samstarfsverkefni Shaanxi Geothermal Energy og ENEX Kína, sem að standa Orkuveita Reykjavíkur, Glitnir og ENEX.