Gistinætur á hótelum í október voru 183.600 sem er 16% aukning miðað við október 2013. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra gesta voru 82% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 23% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 7%. Yfir tólf mánaða tímabil hefur fjöldi gistinátta aukist um 14%.

Flestar gistinætur voru á höfuðborgarsvæðinu um 128.800 sem er 15% aukning miðað við október 2013. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 24.500 og hefur gistinóttum á Suðurlandi fjölgað um 40% samanborið við október 2013.

Erlendir gestir með flestar gistinætur í október voru Bretar með 43.900, Bandaríkjamenn með rúmlega 23.600, og Þjóðverjar með rúmlega 9.300 gistinætur.