© Aðsend mynd (AÐSEND)
Ný íslensk vefsíða sem einfalda á gjafakaup, www.gjafatorg.is, er komin í loftið. Stefna Gjafatorgs er að bjóða til sölu öll helstu gjafakort á Íslandi á einum stað á netinu og tryggja að notendur vefsíðunnar finni ávallt gjafakort við hæfi og geti gengið frá kaupum gjafakorta á einfaldan og öruggan hátt. Eins og er eru samstarfsaðilar Gjafatorgs 32 og má þar nefna 66°Norður, Icelandair, Borgarleikhúsið, Fosshótel og Hamborgarafabrikkuna.