Guðný Erla
Guðný Erla
Guðný Erla Guðnadóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Landsbankans á Höfn í Hornafirði. Guðný Erla er verkfræðingur og hefur meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskólan Íslands. Hún hefur undanfarið unnið sem Lána- og viðskiptastjóri fyrirtækja hjá Íslandsbanka á Ísafirði. Alls tíu manns sóttust eftir stöðunni sem auglýst var í júní, þar af voru fjórar konur og sex karlar.

Guðný Erla hefur starfað sem lána- og viðskiptastjóri fyrirtækja frá 2007, árin 2005-2007 starfaði hún sem framkvæmdastjóri trésmíðaverkstæðis og þar áður sem framkvæmda- og fjármálastjóri fiskvinnslu í afleysingum. Guðný Erla mun hitta starfsmenn á Hornafirði í júlí og hefja störf á næstu vikum.