Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur í dag staðfest lánshæfiseinkunnir Kaupþings banka hf. til langs tíma A1 og til skamms tíma P-1. Einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika C+ verður tekin til endurskoðunar til hugsanlegrar lækkunar.

Samtímis voru lánshæfiseinkunnir dótturfélags Kaupþings banka hf., FIH Erhvervsbank A/S í Danmörku, staðfest til langs tíma A1 og til skamms tíma P-1.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning Moody's frá í dag um lánshæfismat íslensku bankanna.