Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,3% og er 4.307 stig í lok dags, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 3,9 milljörðum króna. Stærstu viðskipti dagsins námu 631 milljón með bréf Exista.

Danska vísitalan OMXC hækkaði um 0,3%, norska vísitalan OBX hækkaði um 0,8% og sænska vísitalan OMXS hækkaði um 0,6%. Annars voru helstu vísitölur í Evrópu rauðar við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.