Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] lækkaði um 2.5% í dag og stóð við lok markaða í 4.011 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga. Athygli vekur að Eimskipafélagið [ HFEIM ] lækkar mest allra félaga annan daginn í röð en félagið hefur nú lækkað um 34.5% á síðastliðinni viku.

Velta með hlutabréf var tæpir 3,3 milljarðar. Þar af voru tæpar 930 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 800 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og um 620 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en nokkuð minni velta var með bréf í öðrum félögum.