Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði í vikunni sem nú er á enda um 2,3%. Við lok markaða s.l. föstudag stóð vísitalan í 3.967 stigum en stóð við lok markaða í dag í 4.057 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Á miðvikudaginn í síðustu viku fór Úrvalsvísitalan undir 4.000 stig í fyrsta sinn í rúma 40 mánuði en fór í fyrsta skipti í dag aftur upp fyrir 4.000 stigin. Úrvalsvísitalan lækkaði fyrstu þrjá daga vikunnar, hækkaði síðan um 1,4% í gær og þá um 5,3% í dag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga í Kauphöllinni í vikunni.

Föroya banki [ FO-BANK ] hækkaði mest allra félaga í vikunni eða um 6,7%. Félagið hefur þó lækkað um 6,1% frá áramótum.

Century Aluminum [ CENX ] er enn eina félagið sem hefur hækkað í Kauphöllinni frá áramótum en félagið hefur hækkað um 5,7%.

Eimskipafélag Íslands [ HFEIM ] leiddi lækkanir í Kauphöllinni aðra vikuna í röð. Félagið lækkaði í þessar viku um 45% en hafði í fyrri viku lækkað um 35,4%. Þá hefur félagið lækkað um 87,3% frá áramótum.

Veltan eykst enn milli vikna

Velta með hlutabréf jókst töluvert milli vikna og hefur verið að aukast síðustu vikurnar. Veltan var í vikunni um 46 milljarðar króna samkvæmt Markaðsvakt Mentis en var í vikunni þar á undan 26,3  milljarðar.

Mest var veltan með bréf í Glitni [ GLB ] eða fyrir rúma 14,5 milljarða króna.

Þá var velta fyrir um 13,3 milljarða króna með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 10,3 milljarðar með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 3 milljarðar með bréf í Straum [ STRB ] og um 1,6 milljarðar með bréf í Exista [ EXISTA ].