Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að bjóða aðilum Kauphallarinnar á Íslandi að gerast aðilar að samningum í tengslum við aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með íbúðabréf.   „Aðilar að OMX Nordic Exchange á Íslandi sem tilbúnir eru að takast á herðar þær kröfur sem samningurinn gerir og hyggjast gerst viðskiptavakar íbúðabréfa þurfa að undirrita samning í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði milli kl. 12:00 og 13:00, miðvikudaginn 18. júní 2008 í Íbúðalánasjóði,“ segir í tilkynningu frá sjóðnum.