Hlutabréf í Icelandair Group hafa hækkað um 3,17% það sem af er degi í 738 milljón króna viðskiptum.

Icelandair Group hf. gáfu fyrr í dag út drög af árshlutareikningi fyrir þriðja ársfjórðung 2015, en afkoma félagins var betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Félagið gaf einnig út hækkaða afkomuspá fyrir fjórða ársfjórðung þar sem áætlaðuð EBITDA félagsins var hækkuð um 40 milljónir Bandaríkjadala.

Hlutabréf Icelandair tók stökk eftir að drögin voru birt, hæst fóru bréfin í 33,8 krónur á hlut en eru núna í 33,4 krónur á hlut, sem samsvarar 3,17% hækkun frá opnun markaðar.