Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks hefur tilkynnt að hann hafi stofnað vörslusjóð í svissneskum banka. Sjóðurinn lúti svipuðu regluverki og ef um sjálfseignarstofnun væri að ræða en tilgangurinn hafi verið að mynda eigin eftirlaunasjóð.

Kemur þetta fram í frétt mbl.is . Þar er haft eftir Júlíusi að allt sem við komi sjóðnum sé í samræmi við íslensk lög og reglur, enda hafi Júlíus notið sérfræðiráðgjafar til að tryggja að réttilega og löglega væri að málum staðið. Þá hafi honum verið ráðlagt að skrá stofnun sjóðsins í Panama og að hann hafi farið eftir þeim ráðleggingum.

Hann segist hvorki hafa fengið greitt úr sjóðnum né haft af honum annars konar tekjur og að hann hafi ekki til að ráðstafa fjármunum úr honum. Ef greitt yrði úr sjóðnum yrðu greiðslurnar skattskyldar á Íslandi, eins og gerist með séreignarsparnaðarreikninga.

Hann segir fyrirkomulag sjóðsins og aðrar upplýsingar liggja fyrir hjá skattayfirvöldum, en hann biðist velvirðingar á því að hafa ekki greint frá sjóðnum í hagsmunagreiningu borgarfulltrúa, þótt þess sé ekki krafist.