Lífeyrisssjóðir Bankastræti 7 hafa minnkað við eignahlut sinn í Bakkavör Group í 4,67% úr 5,14%, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.

Um er að ræða 10.000.000 hluti og er markaðsverð þeirra 515 milljónir króna. Ekki hefur verið tilkynnt um hver keypti.