Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu lækkuðu við opnun markaða í morgun. Í London lækkaði FTSE-vísitalan um 0,3% og í Frankfurt lækkaði DAX einnig um 0,3%

Lækkun á hlutabréfaverði er helst rakin til þeirra fregna að Moody´s hafi nú lánshæfiseinkunn Spánar til endurskoðunar með möguleika á lækkun. Einkunn landsins er í dag Aa1.