Matsfyrirtækið Moody?s Investor Service sem metur lánshæfi íslensku bankanna og ríkissjóðs hefur gefið út lánshæfiseinkunina Aaa fyrir nýja skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs Íslands til fimm ára að fjárhæð einn milljarður evra (90 milljarðar króna). Þetta er einkunn í hæsta gæðaflokki og er sú sama og er í gildi fyrir skuldbindingar ríkissjóðs í erlendri og innlendri mynt.  Að mati Moodys eru horfur fyrir lánshæfismatið stöðugar.