„Ég kem hér upp í jákvæðum tilgangi til að benda þingheimi á að lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins hefur tekist að hafa hendur í hári níu hættulegra glæpamanna . Og í Héraðsdómi Reykjaness í morgun voru lögfestar kærur lögreglunnar þar sem hún fer fram á að forða borgurum landsins frá athæfi þessara glæpamanna,“ sagði Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum um störf þingsins.

Hann kynnti því næst til sögunnar nokkra af hinum níu mótmælendum. Það voru þau Tinna Þorvaldsdóttur Önnudóttur, leikkona og söngnemi, Kristinn Guðmundsson 61 árs sjávarlífrræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun og  Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir 70 ára píanóleikari og fyrrverandi tónlistarskólastjóri á Álftanesi.  „Ég gæti futt hér sex nöfn í viðbót,“ sagði Mörður svo.

Mörður benti á að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefði nú lagt fram kæru á hendur þessu fólki fyrir þátttöku í mótmælum, að tjá skoðanir sínar. Mörður sagði að hafi þetta fólk brotið af sér myndi það í öðrum löndum kallast borgaraleg óhlýðni. „Sú borgaralega óhlýðni sem við metum þannig í útlöndum að að Forseti Íslands leggur blómsveig að leiði Gandhis og hér í háskólanum er haldið málþing um Nelson Mandela,“ segir Mörður.

Mörður spurði hvaða pólitík væri hér á ferðinni. „Er verið að vara við, er verið segja mótmælendum framtíðarinnar til dæmis í nátúrverndamálum næstu árin. Þegar verið er að kippa náttúverndaáætlun úr gildi – þegar verið er að eyðileggja rammaáætlun að hafa sig hæga?“ spurði Mörður.