Nýtt uppsjávarskip Ísfélags Vestmannaeyja, sem er í smíðum í Celiktrans í Istanbul í Tyrklandi, var sjósett á fimmtudaginn í síðustu viku. Þetta kemur fram í Fiskifréttum sem komu út á fimmtudag.

Skipið verður tilbúið til veiða í byrjun næsta árs.

Skipið 80 metra langt og 17 metra breitt og verður afar vel útbúið til veiða á uppsjávarfiski svo sem loðnu, síld, makríl og kolmunna.

Stærsti eigandi Ísfélags Vestmannaeyja er Guðbjörg Matthíasdóttir.