Öflun ehf. sem er með umboð fyrir Apple á Íslandi hefur keypt 37,8% í norska fyrirtækinu Office Line ASA, sem skráð er í kauphöllinni í Ósló. Office Line, rekur sjö verslanir og þrettán söluskrifstofur í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi, og er stærsti seljandi Apple vara á Norðurlöndum einkum til fyrirtækja og stofnana.

Í tilkynningu frá Öflun segir að áætluð velta Office Line á þessu ári er um 490 milljónir norksra króna. Starfsmenn félagsins eru 140.

Með kaupum Öflunar á ráðandi hlut í Office Line styrkir félagið sig verulega í samkeppni við aðra seljendur Apple á Norðurlöndum. Öflun rekur nú auk Appleverslunar sinnar í Reykjavík tvær Apple verslanir í Kaupmannahöfn og eina í Stokkhólmi.