Peningamagn í umferð minnkaði um rúma 2,5 milljarða króna í síðasta mánuði. Nú eru um 36,8 milljarðar króna af seðlum og mynt í umferð samkvæmt nýjum hagtölum Seðlabankans.

Samkvæmt tölum Seðlabankans um bankakerfið hafur aldrei verið jafn mikið fjármagn og í síðasta mánuði þegar um 39,4 milljarðar króna af seðlum og mynt voru í umferð en tölur bankans ná aftur til ársins 1994. Til gamans má geta að í janúar 1994 voru um 3,4 milljarðar króna í umferð.

Peningamagn í umferð jókst um 4,1 milljarða króna á milli mánaða í desember sl. og hefur ekki aukist jafn mikið á milli mánaða síðan í desember 2010. Þá jókst peningamagn í umferð um 7 milljarða á síðasta ári en hefur nú aukist um 4,5 milljarða á milli ára.

© vb.is (vb.is)

Eins og sjá má á myndinni hér að ofan jókst magn peninga í umferð gífurlega í október 2008, eða um tæp 90%. Þá fór magn peninga í umferð frá því að vera tæpir 12,6 milljarðar króna í september 2008 í það að vera um 23,7 milljarðar króna í október sama ár. Hefðbundið magn peninga í umferð á milli 11 og 13 milljarðar króna fram að hruni bankanna í október s.l.

Þá minnkaði peningamagn í umferð fram á vorið 2009 en hefur síðan þá aukist jafnt og þétt að undanskildum lækkunum í byrjun árs bæði 2010 og 2011 – loks nú í byrjun árs 2012.