Raungengi íslensku krónunnar hækkaði um 1,2% í september frá fyrri mánuði á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Hækkunin er komin til bæði vegna þess að nafngengi krónunnar hækkaði um 0,5% og vegna þess að verðbólgan hér á landi var umfram það sem hún var í okkar helstu nágrannalöndum.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka en það er Seðlabankinn sem birtir raungengi krónunnar í Hagtölum sínum.

Í Morgunkorni kemur fram að frá því í upphafi síðastliðins árs hefur raungengi krónunnar hins vegar lækkað umtalsvert samhliða gengislækkun krónunnar og er það nú afar lágt í sögulegu samhengi. Þannig er raungengið nú um þriðjungi undir langtímameðaltali sínu og 44% lægra en það var í nóvember 2005 þegar það náði hámarki.

„Þetta merkir m.a. að verðlag á Íslandi er mun lægra nú í samanburði við verðlag í öðrum ríkjum en verið hefur í áraraðir,“ segir í Morgunkorni en frá þriðja ársfjórðungi hefur raungengi krónunnar lækkað um 2,4% frá öðrum ársfjórðungi en um 21,7% frá sama tímabili í fyrra.

Greining Íslandsbanka segir að kostir lágs raungengis eru að það eykur samkeppnishæfni innlendra aðila hvað varðar framleiðslukostnað vöru og þjónustu og flýtir fyrir aðlögun hagkerfisins í átt að ytra jafnvægi.

Þannig hjálpi það útflutningsatvinnuvegum, auk þeirri innlendu starfsemi sem á í samkeppni við innflutning. Greiningardeildin segir að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki ættu að njóta góðs af lágu raungengi þar sem kaupmáttur erlendra ferðamanna sem leggja leið sína hingað til lands er mun meiri en áður sem eflaust ætti að leiða til þess að þeir komi til með gera betur við sig í mat, drykk og afþreyingu en undanfarin ár.

„Á hinn bóginn gerir lágt raungengi krónunnar það að verkum að kaupmáttur Íslendinga á erlendri grundu hefur snarminnkað,“ segir í Morgunkorni.

„Þetta hefur m.a. haft þau áhrif að landinn hefur snardregið úr utanferðum en á fyrstu átta mánuðum þessa árs hafði brottförum Íslendinga fækkað um 45% frá sama tímabili í fyrra. Jafnframt er lágt raun- og nafngengi mikill vágestur heimilanna þar sem það eykur lánsfjárkostnað þeirra, hvort sem um er að ræða gengis- eða verðtryggð lán, og skerðir kaupmátt ráðstöfunartekna. Jafnframt gerir lágt raungengi heima fyrir það að verkum að launakjör í útlöndum verða hagstæðari og vafalaust mun það freista marga að flytjast af landi brott, sér í lagi ef svo lágt raungengi festist í sessi.“ Sjá nánar í Morgunkorni.