Sjö starfsmenn föllnu bankanna eru á lista yfir tíu tekjuhæstu einstaklingana árið 2017 samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra. Þetta kemur fram í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í morgun.
Stjórnendur Glitnis HoldCo, gamla Glitnis, og LBI, gamla Landsbankans, fengu háar bónusgreiðslur á síðasta ári fyrir störf sín fyrir félögin.
Þannig samsvöruðu tekjur þeirra Tom Gröndahl og Steen Parsholt, sem sátu í stjórn Glitnis, að jafnaði 56 milljón króna á mánuði. Þá eru Ingólfur Hauksson, framkvæmdastjóri Glitnis, og Snorri Viðar Arnarsson og Ragnar Björgvinsson, lykilstarfsmenn bankans einnig á listanum. Auk þes er Richard Katz, stjórnarformaður LBI og Ársæll Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LBI á meðal tíu tekjuhæstu.
Þeir einu sem komast á topp tíu listann en eru ekki starfsmenn föllnu bankanna eru Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa og Valur Ragnarsson, forstjóri Medis.
Tekjuhæstu einstaklingarnir árið 2017
- Tom Gröndahl, stjórn Glitnir HoldCo. 55.978
- Steen Parsholt, stjórn Glitnir HoldCo. 55.978
- Richard Katz, stjórn LBI. 32.730
- Vilhelm Róbert Wessman, forstjóri Alvogen 25.815
- Ingólfur Hauksson, framkvæmdastjóri Glitnir HoldCo. 19.237
- Ársæll Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LBI 17.892
- Snorri Arnar Viðarsson, eignastýring Glitnir HoldCo. 16.765
- Ragnar Björgvinsson, yfirlögfræðingur Glitnir HoldCo. 16.105
- Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa 15.096
- Valur Ragnarsson, forstj. Medis 14.882
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2017 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.