Sælkerabúðin Bitruhálsi, sem opnaði um mitt ár 2020, hefur kætt mataráhugamenn með útfærslum af tilbúnum réttum, sósum, meðlæti og úrvali af sérvöldu gæðakjöti. Sælkerabúðin er nú stækka að við sig með sérverslunum inni í verslunum Hagkaups í Garðabæ og Kringlunni.

Undirbúningur þessara sérverslana er hafinn og vonast er til að opna þær í seinni hluta ágústmánaðar ef allt gengur upp. „Það er því spennandi haust fram undan í Hagkaup,“ segir í fréttatilkynningu.

Sjá einnig: Breyti matarmenningu til frambúðar

Að baki vörum Sælkerabúðarinnar eru meistarakokkarnir Hinrik Lárusson og Viktor Örn Andrésson sem báðir hafa verið í íslenska kokkalandsliðinu og unnið til margra verðlauna í matreiðslukeppnum.

„Við erum tilbúnir að stækka og ná til stærri hóps með okkar frábæru vörum,” er haft eftir þeim félögum. „Þegar tækifærið bauðst til að vinna með Hagkaup þá fannst okkur það passa við okkar framtíðarsýn. Hagkaup er sú verslun sem býður landsmönnum upp á framúrskarandi úrval í öllu sem snýr að mat og fersku grænmeti. Við töldum það frábæra leið að leggja í þetta ferðalag með þeim.“

„Við erum þess fullvissir að viðskiptavinir Hagkaups, sem eru miklir matgæðingar, eigi eftir að taka okkur fagnandi og okkur hlakkar til að takast á við þessa spennandi áskorun,“ segja Viktor og Hinrik.“

Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, segist vera gríðarlega spenntur yfir þessum breytingum.

„Við í Hagkaup eru sífellt að leita leiða til að styrkja þá valkosti sem við getum boðið okkar viðskiptavinum. Við vitum að þeir eru kröfuharðir og við gerum okkar besta að standa undir því. Við teljum því að þetta nýjasta útspil eigi eftir að slá í gegn hjá okkar viðskiptavinum,“ segir Sigurður.