Dómstóll í Amsterdam hefur sýknað Bosch Siemens Hausgeräte vegna kröfu breska raftækjaframleiðandanum Dyson.

Dyson hafði haldið því fram að ryksugur frá þýsku raftækjaframleiðendunum Siemens og Bosch innihaldi hugbúnað sambærilegum hugbúnaði Volkswagen. Dyson hélt því fram að ryksugurnar innihaldi hugbúnað sem geri þeim kleift að skynja hvenær þær eru að sjúga upp ryk, en þá auki þær sogkraftinn og nota þ.a.l. meiri orku en við opinberar prófanir.

Fyrirtækin höfnuðu ásökunum Dyson og sagði að ryksugur frá Bosch og Siemens séu prófaðar skv. tilskipun Evrópusambandsins um visthönnun á ryksugum, en Evrópusambandið hefur skilgreint nákvæma mælistaðla til að mæla orkumerkingargildi ryksuganna.

Dyson fór í mál við dótturfélag Bosch í Hollandi á þeim grundvelli að fyrirtækið væri að blekkja neytendur. Dómstóllinn í Amsterdam hafnaði ásökunum Dyson og sagði að það væri ekki misræmi milli orkumælinga í ryksugum fyrirtækjanna.

Bosch hefur nú einnig tilkynnt að það hyggist höfða mál gegn Dyson, og eiganda þess Sir James Dyson, í Bretlandi.