Sigríður Dögg Auðunsdóttir lætur af störfum sem ritstjóri Fréttatímans og mun taka við sem þróunarstjóri útgáfufélags blaðsins. Þetta kom fram í Morgunútgáfunni á Rás 2.

Sigríður Dögg er sátt við breytingarnar og segir spennandi að taka þátt í frekari stefnumótun fjölmiðilsins.

Sigríður Dögg tók þátt í verkefninu Startup Reykjavík þar sem hún stofnaði vefinn Inspiral.ly þar sem finna má jákvæðar fréttir um það sem konur afreka í samfélaginu.