Bílasalan Úranus ehf. hagnaðist um 55,1 milljón króna á síðasta ári samanborið við 29,6 milljónir árið á undan. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins.

Velta fyrirtækisins nam 1,8 milljörðum króna og jókst um 66% milli ára. Rekstrargjöld námu 1,7 milljörðum og jukust um tæp 65% milli ára. Rekstrarhagnaður nam 78,1 milljón en var 39,6 milljónir árið á undan.

Eignir Úranusar námu 201,5 milljónum í árslok og var eiginfjárhlutfall 43,8%, sem tvöfaldaðist milli ára.

Framkvæmdastjóri Úranusar er Georg Mikaelsson.