Straumur fjárfestingabanki hefur selt 5,6% hlut sinn í Teymi, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Um er að ræða 199.865.270 hluti en gengi viðskiptanna kemur þar ekki fram. Við lok markaðar í gær var gengið 5,78. Ef miðað er við það, er verðmæti sölunnar um 1,15 milljarður króna.