Kosið var í stjórn tæknifyrirtækisins Kögunar á aðalfundi félagsins í dag. Stjórnina mynda Örn Karlsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Guðmundur Þórðarson, og Brynjólfur Bjarnason og Orri Hlöðversson fyrir hönd Símans og Exista.

Síminn og Exista fara saman með 39% atkvæða.

Í framboði til stjórnar voru Örn Karlsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Guðmundur Þórðarson, Katrín Pétursdóttir, Orri Hlöðversson og Brynjólfur Bjarnason.

Áður en gengið var til atkvæða hélt Vilhjálmur Þorsteinsson ræðu sem verður að skoðast sem framboðsræða. Þar hvatti hann fundarmenn til að styja við núverandi stjórnendur við áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins. Fulltrúar Símans tjáðu sig hins vegar ekkert um framboð sitt.